Ný ríkisstjórn tekin til starfa


Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknarflokks tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum síðdegis. Tveir nýjir ráðherrar taka sæti í stjórninni og Kristján Þór Júlíusson lét af ráðherraembætti eftir átta ára samfellda setu við ríkisstjórnarborðið. Kristján Þór lét af þingmennsku í haust eftir 14 ára þingmannsferil.
Enginn ráðherra verður úr Norðausturkjördæmi í nýrri ríkisstjórn og reyndar sitja aðeins tveir landsbyggðarþingmenn í henni sem hljóta að teljast vonbrigði fyrir landsbyggðina.
Miklar tilfærslur verða milli ráðuneyta frá fráfarandi ríkisstjórn og verkefni færð til og áherslum breytt til samræmis við stjórnarsáttmála flokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn verður áfram með fimm ráðherra í ríkisstjórn:
Bjarni Benediktsson verður áfram fjármála- og efnahagsráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verður utanríkisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson verður umhverfis- orku- og loftslagsráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir verður vísinda- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Jón Gunnarsson verður innanríkisráðherra
Birgir Ármannsson verður forseti Alþingis og Óli Björn Kárason verður þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún Hafsteinsdóttir verður innanríkisráðherra í stað Jóns innan næstu átján mánaða.
Jón Gunnarsson lætur samhliða þessu af embætti ritara Sjálfstæðisflokksins enda er tekið skýrt fram í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins að ráðherra getur ekki samhliða verið ritari flokksins.
VG fer með forsætisráðuneytið, matvæla- landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið, og félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytið en Framsóknarflokkur fer með innviðaráðuneytið, ferðamála- viðskipta og menningarmálaráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið
Ráðherrar VG verða Katrín Jakobsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Svandís Svavarsdóttir
Ráðherrar Framsóknarflokks verða Sigurður Ingi Jóhannsson, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Willum Þór Þórsson