15. október 2020
Njáll Trausti verður varaformaður utanríkismálanefndar


Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, var kjörinn varaformaður utanríkismálanefndar á þingfundi á þriðjudag. Njáll Trausti mun áfram sitja í atvinnuveganefnd og sem formaður Íslandsdeildar Nató-þingsins samhliða því.
Njáll Trausti hættir sem aðalmaður í fjárlaganefnd samhliða þessum breytingum en verður þess í stað varamaður í nefndinni.