28. janúar 2021

Njáll Trausti kjörinn formaður Varðbergs

Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, var kjörinn formaður Varðbergs á fjar-aðalfundi í kvöld. Njáll Trausti tekur við formennsku af Birni Bjarnasyni, fyrrum dómsmálaráðherra.

Aðrir í stjórn félagsins til næstu tveggja ára eru: Davíð Stefánsson, Gustav Pétursson, Karítas Ríkharðsdóttir, Kjartan Gunnarsson, Magnús Örn Gunnarsson og Sóley Kaldal.