20. desember 2016

Njáll Trausti hættir í bæjarstjórn

Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, hefur beðist lausnar úr bæjarstjórn frá 1. janúar nk. Lausnarbeiðni hans var samþykkt í bæjarstjórn í dag. Njáll Trausti hefur verið bæjarfulltrúi frá kosningum 2014 en var áður varabæjarfulltrúi 2010-2014 - Njáll Trausti hefur setið í framkvæmdaráði frá 2010.

Bergþóra Þórhallsdóttir, fyrsti varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, verður bæjarfulltrúi nú, en hún hefur óskað eftir leyfi frá setu í bæjarstjórn til 1. ágúst 2017 vegna anna á öðrum vettvangi. Því tekur Baldvin Valdemarsson, annar varabæjarfulltrúi, sæti í bæjarstjórn um áramót.

Varabæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða Sigurjón Jóhannesson, Þórunn Sif Harðardóttir og Elías Gunnar Þorbjörnsson.