17. september 2024

Njáll Trausti fer yfir fjárlögin og stöðuna í pólitíkinni 19. september

Málfundafélagið Sleipnir boðar til fundar í Geislagötu 5 fimmtudaginn 19. september kl. 17:00.

Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og nýkjörinn formaður fjárlaganefndar Alþingis, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum.

Njáll mun fara yfir fjárlagafrumvarpið með okkur og ræða um stöðuna í pólitíkinni og þingveturinn framundan.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis

Allir velkomnir - heitt á könnunni.