15. júní 2022

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins haldinn 4. - 6. nóvember

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að 44. landsfundur Sjálfstæðisflokksins fari fram í Laugardalshöll dagana 4. – 6. nóvember nk.

Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð. Hann er stærsta stjórnmálasamkoma á Íslandi og störf hans hafa mikil áhrif, bæði inn í stjórnmálin en einnig út á við til þjóðarinnar.

Seturétt á landsfund eiga flokksráðsfulltrúar flokksins auk þess sem félög og fulltrúaráð kjósa fulltrúa til setu á fundinum. Til þess að sjá hvort fólk sé í flokksráði (og þar með sjálfkjörið) er farið á mínar síður  – Flokkurinn – Núverandi trúnaðarstörf – Flokksráð

Aðrir þeir sem hafa áhuga á að sitja landsfund geta óskað eftir seturétti hér .

 

Allar upplýsingar um fundinn verða birtar á xd.is um leið og þær liggja fyrir.