6. ágúst 2021
Landsfundi frestað - flokksráð kallað saman á rafrænum fundi


Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi sínum í dag að fresta fyrirhuguðum landsfundi flokksins sem fara átti fram dagana 27. – 29. ágúst nk. um óákveðinn tíma.
Þess í stað verður flokksráð Sjálfstæðisflokksins kallað saman sömu helgi á rafrænum fundi.
Er þetta gert í ljósi stöðunnar í útbreiðslu kórónuveirufaraldursins hér á landi.
Nánari dagskrá flokksráðsfundar verður send fulltrúum á næstu dögum.
Flokksfólk og sérstaklega flokksráðsmenn eru hvattir til að fara inn á Mínar síður á xd.is ( hér ) og uppfæra tengiliðarupplýsingar um sig til að auðvelda flokknum að eiga samskipti við flokksfólk.