3. febrúar 2015

Lagabreytingar á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri

Aðalfundir sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verða haldnir næstu daga í Kaupangi:
Málfundafélagið Sleipnir: fimmtudaginn 5. febrúar kl. 19:30
Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna: föstudaginn 6. febrúar kl. 20:00
Sjálfstæðisfélag Akureyrar: laugardaginn 7. febrúar kl. 11:00
Vörn, félag sjálfstæðiskvenna: mánudaginn 9. febrúar kl. 20:00 

Á fundunum verða lagðar fram lagabreytingatillögur sem gera ráð fyrir því að aðalfundi félaganna þurfi nú að halda fyrir 15. febrúar í stað fyrir lok september áður.

Þessi lagatillaga er lögð fram í ljósi þess að skipulagsreglur gera nú ráð fyrir aðalfundartíma fyrir lok febrúar, svo reikningsskil félaga miðist við almanaksárið.


Stjórnir sjálfstæðisfélaganna á Akureyri