10. janúar 2017

Kristján Þór verður menntamálaráðherra

Kristján Þór Júlíusson, oddviti okkar sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi, verður menntamálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar undir forsæti Bjarna Benediktssonar.

Auk Bjarna og Kristjáns verða Guðlaugur Þór Þórðarson, Jón Gunnarsson, Sigríður Á. Andersen og Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins. 

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tekur ekki sæti í ríkisstjórn að svo stöddu, en hún hefur verið í veikindaleyfi.

Unnur Brá Konráðsdóttir verður forseti Alþingis og Birgir Ármannsson verður þingflokksformaður.