25. september 2021

Kristján Þór lætur af þingmennsku

Kjörtímabilið í landsmálunum rann út á miðnætti. Með því lét Kristján Þór Júlíusson, ráðherra og fráfarandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, af þingmennsku eftir 14 ára setu. Kristján Þór hefur leitt flokkinn í kjördæminu frá árinu 2007 og verið ráðherra í þremur ríkisstjórnum frá árinu 2013.

29 ára gamall varð Kristján Þór bæjarstjóri í heimabæ sínum Dalvík 1986, þá sjómaður og kennari, nýútskrifaður úr háskóla og kominn aftur heim. Hann var bæjarstjóri á Dalvík í átta ár - réði sig vestur á Ísafjörð sem bæjarstjóri sumarið 1994 og starfaði þar í rúm þrjú ár, leiddi þar sameiningu margra sveitarfélaga í nýjan og sterkari Ísafjarðarbæ og leiddi vestfirska byggð í gegnum snjóflóðin vestra 1995. Í aðdraganda kosninganna 1998 fluttist Kristján Þór til Akureyrar og leiddi Sjálfstæðisflokkinn til valda í stórsigri í kosningum og var bæjarstjóri í tæp níu ár.

Þegar Halldór Blöndal ákvað að láta af þingmennsku gaf Kristján Þór kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 2007 og sigraði prófkjör með miklum yfirburðum í baráttu við tvo keppinauta. Kristján Þór hlaut endurkosningu í prófkjöri tvisvar, fyrst án mótframboðs 2009 og aftur í hörðum oddvitaslag 2013. Að loknum kosningum það vor varð hann heilbrigðisráðherra í stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Að loknum kosningum 2016 varð Kristján Þór menntamálaráðherra í stjórn Sjálfstæðisflokks með Viðreisn og Bjartri framtíð og tók við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í stjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknarflokks að loknum haustkosningum 2017, þegar þing var rofið við óvænt stjórnarslit.

Kristján Þór víkur nú af hinu pólitíska sviði eftir 35 ára þjónustu í sveitarstjórnar- og landsmálum. Sjálfstæðisfélögin á Akureyri þakka honum forystu sína og hið pólitíska starf gegnum árin.


Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings og formaður Sleipnis