15. júlí 2017

Kristján Þór Júlíusson sextugur

Kristján Þór Júlíusson, menntamálaráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, er sextugur í dag.

Kristján Þór fæddist á Dalvík 15. júlí 1957. Hann ólst upp á Dalvík, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og 1. og 2. stigi skipstjórnar frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Að auki á hann að baki nám í íslensku og almennum bókmenntum við Háskóla Íslands og próf í uppeldis- og kennslufræði við sama skóla. Kristján Þór var stýrimaður og skipstjóri á skipum frá Dalvík og kenndi við Stýrimannaskólann á Dalvík og einnig við Dalvíkurskóla.

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Kristján Þór í tilefni af afmælinu:

Eftir stúdentspróf fórstu í Stýrimannaskólann.  Var það ætlunin að  gera sjómennskuna að ævistarfi?

„Nei, nei! Þetta var bara það sem  mig langaði að gera þá. Tíminn leiddi  svo í ljós nýjar áskoranir sem ég vildi  ekki víkjast undan. Ég hef aldrei  ákveðið neitt eitt ævistarf í eitt skipti  fyrir öll – aldrei lokað á ný tækifæri.  Það er m.a. ástæða þess að ég hef notið  þeirrar gæfu í gegnum tíðina að fá  að glíma við fjölbreytileg verkefni  með frábæru fólki. Fyrir það er ég  þakklátur.“

En þetta er ólíkur starfsvettvangur 
– sjómennska og pólitík?

„Já, á yfirborðinu. En í grunninn  snýst þetta um að sinna sínum verkum  af alúð og ábyrgð, hvort heldur  það er gagnvart áhöfninni, fjölskyldum  hennar eða gagnvart kjósendum.  Það skiptir einnig miklu máli að  glæða starfsandann, stilla saman  strengi og hvetja fólk til dáða. Án þess  fiska menn lítið og koma fáu góðu til  leiðar í stjórnmálum.“ 



Kristján Þór var bæjarstjóri á Dalvík 1986-1994, bæjarstjóri á Ísafirði 1994-1997 og bæjarstjóri á Akureyri 1998-2007. Kristján Þór var oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 1998-2007. Hann sat í bæjarstjórn Akureyrar 1998-2010 og var forseti bæjarstjórnar Akureyrar 2007-2009.

Kristján Þór var kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í prófkjöri í nóvember 2006 og hefur setið á Alþingi frá vorinu 2007. Kristján Þór var 2. varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2012-2013. 

Kristján Þór hefur verið menntamálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar frá 11. janúar 2017 og var heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 2013-2017.

Kristján Þór sat í fjárlaganefnd 2007-2013, iðnaðarnefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2009-2011, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2007-2009 og Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2009-2013.

Eiginkona Kristjáns Þórs er Guðbjörg Ringsted, grafíklistamaður, og eiga þau fjögur börn; Maríu, Júlíus, Gunnar og Þorstein, og tvö barnabörn.

Sjálfstæðismenn á Akureyri og Norðausturkjördæmi öllu óska Kristjáni Þór innilega til hamingju með stórafmælið.


Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings