13. mars 2021

Kristján Þór gefur ekki kost á sér til endurkjörs

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, gefur ekki kost á sér til endurkjörs í alþingiskosningunum í haust. Hann tilkynnti ákvörðun sína formlega í ítarlegu viðtali við Andrés Magnússon í sunnudagsblaði Morgunblaðsins þar sem hann fer yfir feril sinn og pólitískt starf.

Kristján Þór hefur leitt flokkinn í kjördæminu frá árinu 2007 og verið ráðherra í þremur ríkisstjórnum frá árinu 2013. 29 ára gamall varð Kristján Þór bæjarstjóri í heimabæ sínum Dalvík 1986, þá sjómaður og kennari, nýútskrifaður úr háskóla og kominn aftur heim. Hann var bæjarstjóri á Dalvík í átta ár - réði sig vestur á Ísafjörð sem bæjarstjóri sumarið 1994 og starfaði þar í rúm þrjú ár, leiddi þar sameiningu margra sveitarfélaga í nýjan og sterkari Ísafjarðarbæ og leiddi vestfirska byggð í gegnum snjóflóðin vestra 1995. Í aðdraganda kosninganna 1998 fluttist Kristján Þór til Akureyrar og leiddi Sjálfstæðisflokkinn til valda í stórsigri í kosningum og var bæjarstjóri í tæp níu ár.

Þegar Halldór Blöndal ákvað að láta af þingmennsku gaf Kristján Þór kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 2007 og sigraði prófkjör með yfirburðum í baráttu við tvo keppinauta. Kristján Þór hlaut endurkosningu í prófkjörum 2009 og í hörðum oddvitaslag 2013. Að loknum kosningum það vor varð hann heilbrigðisráðherra í stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Að loknum kosningum 2016 varð Kristján Þór menntamálaráðherra í stjórn Sjálfstæðisflokks með Viðreisn og Bjartri framtíð og tók við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í stjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknarflokks að loknum haustkosningum 2017, þegar þing var rofið við óvænt stjórnarslit.

Hann seg­ist hafa tekið ákvörðun­ina að vel ígrunduðu máli. „Ég hef hugsað þetta og bú­inn að gera það upp við mig, að þetta sé orðið gott eft­ir 35 ára þjón­ustu í stjórn­mál­um og ætla því ekki að leita end­ur­kjörs í haust,“ seg­ir Kristján Þór í viðtal­inu. Hann ætlar ekki að draga sig al­farið í hlé frá stjórn­mál­um, hann verði áfram virk­ur í starfi Sjálf­stæðis­flokks­ins þótt hann verði ekki í flokks­for­yst­unni að þessu kjör­tíma­bili loknu.