Kraftur og stemmning í opnunarhátíð kosningaskrifstofu á Akureyri


Það var mikið um að vera um helgina í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Hálfur mánuður til kosninga og mikil stemmning í kjarnanum nú þegar lokasprettur baráttunnar fer á fullt.
Slegið var til opnunarhátíðar kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri með fjölskylduhátíð, opnum fundi í Hofi og opnunarpartýi laugardaginn 11. sept. Sérstakir heiðursgestir voru Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jón Gunnarsson, alþingismaður og ritari flokksins.
Á sunnudeginum var flokknum boðið í réttir í Aðaldal. Þar var líf og fjör eins og venja er í hinu þjóðlegu og frægu Hraunsrétt í Aðaldal.
Takk fyrir góðar viðtökur alla helgina.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi