13. mars 2017

Kjördæmisþing í Mývatnssveit 1. apríl

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn í Skjólbrekku í Mývatnssveit laugardaginn 1. apríl nk. Aðeins verður fundað á laugardeginum.

Fundurinn hefst klukkan 13:00 með skýrslu fráfarandi stjórnar. Eftir það tekur við hefðbundin dagskrá aðalfundar í samræmi við lög ráðsins.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, verður gestur þingsins.

Dagskrá kjördæmisþings 1. apríl:

13:00  Fundur hefst – kosning fundarstjóra og fundarritara
          a. Skýrsla stjórnar – Kristinn Frímann Árnason, formaður kjördæmisráðs
          b. Reikningsskil – Þórhallur Harðarson, gjaldkeri kjördæmisráðs
          c. Ákvörðun árgjalds

13:20  Kosningar
          a. Kosning formanns
          b. Kosning 14 stjórnarmanna og 15 varastjórnarmanna
          c. Kosning kjörnefndar
          d. Kosning í flokksráð
          e. Kosning til miðstjórnar
          f. Kosning skoðunarmanna reikninga

13:40  Uppgjör við kosningabaráttuna: Karl Frímannsson, kosningastjóri í alþingiskosningum 2016

14:00  Flokksstarfið - verkefnin framundan:  Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins

14:20  Staðan í pólitíkinni:
          Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
          Kristján Þór Júlíusson, menntamálaráðherra
          Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður

15:20  Kaffihlé

15:30  Fyrirspurnartími:  Bjarni, Kristján Þór og Valgerður svara spurningum fundarmanna

16:40  Stjórnmálaályktun

17:00  Fundarlok - formaður slítur fundi.

Þinggjald er 2000 kr. (Ath. enginn posi)

 

Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi