7. mars 2015

Kjördæmisþing í Fjarðabyggð 21. mars

Boðað er til aðalfundar kjördæmisráðs þann 21. mars nk. í Fjarðabyggð. Sömu helgi fundar miðstjórn Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð.

Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 13:00 í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði með skýrslu fráfarandi stjórnar. Eftir það tekur við hefðbundin dagskrá aðalfundar í samræmi við lög ráðsins. 


Ráðgert er að fundurinn standi til kl. 17:00.  Samhliða fundinum verður haldinn aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi.


Nánari dagskrá aðalfundarins verður send út innan tíðar.