23. apríl 2019

Kjördæmisþing á Húsavík 27. apríl

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn á Húsavík laugardaginn 27. apríl nk.

Fundurinn hefst klukkan 13:00 með skýrslu fráfarandi stjórnar. Eftir það tekur við hefðbundin dagskrá aðalfundar í samræmi við lög ráðsins.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, verða gestir þingsins og flytja ávarp auk þingmanna flokksins í kjördæminu.

 

Dagskrá kjördæmisþings 27. apríl:

 

13:00  Fundur hefst – kosning fundarstjóra og fundarritara

          a. Skýrsla stjórnar – Kristinn Frímann Árnason, formaður kjördæmisráðs

          b. Reikningsskil – Harpa Halldórsdóttir flytur framsögu í fjarveru gjaldkera

          c. Ákvörðun árgjalds

 

13:20  Kosningar

          a. Kosning formanns

          b. Kosning 14 stjórnarmanna og 15 varastjórnarmanna

          c. Kosning kjörnefndar

          d. Kosning í flokksráð

          e. Kosning til miðstjórnar

          f. Kosning skoðunarmanna reikninga

 

13:40  Flokksstarfið - verkefnin framundan:  Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins

 

14:00  Kynning á þriðja orkupakkanum

            Hilmar Gunnlaugsson, formaður fulltrúaráðs á Fljótsdalshéraði

 

14:20  Staðan í pólitíkinni:

          Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

          Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins

          Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður

          Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

 

15:10  Kaffihlé (Aðalfundur KUSNA fer fram í kaffihléinu)

 

15:30  Fyrirspurnartími:  Kristján Þór, Áslaug Arna, Þórdís Kolbrún og Njáll Trausti svara spurningum fundarmanna

 

16:30  Fundarlok - formaður slítur fundi.

 

Að loknum fundi verður farið í Geimfarasafnið og sjóböðin.

 

Um kvöldið verður þriggja rétta hátíðarkvöldverður á hótelinu.

 

 

Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins