Kjördæmisþing á Akureyri 1. október


Í ljósi atburða undanfarinnar viku er ljóst að gengið verður til kosninga eftir rétt rúman mánuð. Er það í annað sinn á innan við ári sem það er gert. Við slíkar aðstæður sem eru mjög sérstakar verður að hafa hraðar hendur við skipan á framboðslista þannig að raunveruleg kosningabarátta geti hafist.
Á aðalfundi kjördæmisráðs 1. apríl 2017 var skipuð kjörnefnd. Stjórn kjördæmisráðs ákvað á fundi sínum 21. september að fela kjörnefnd að taka þegar til starfa, hefja vinnu við að stilla upp framboðslista fyrir alþingiskosningarnar 28. október nk. og leggja fram á fundi kjördæmisráðs.
Í samræmi við framangreint er hér meðfylgjandi boðun á tvo fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi boðar til tveggja funda sem báðir verða haldnir sunnudaginn 1. október 2017.
Fundirnir verða haldnir á 2. hæð veitingahússins Greifans á Akureyri.
Fundur 1 hefst kl. 14:00
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar kjördæmisráðs um aðferð við val á framboðslista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar
Á fundinum mun stjórn kjördæmisráðs bera upp tillögu um að viðhafa skuli uppstillingu við val á framboðslista flokksins vegna alþingiskosninga sem fram fara 28. október næstkomandi.
Fundur 2 hefst að loknum fundi 1.
Dagskrá:
1. Afgreiðsla tillögu kjörnefndar um framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar
2. Kosningabaráttan framundan
Nánari upplýsingar veitir Kristinn Frímann Árnason, formaður kjördæmisráðs, í síma 695-1968 og/eða tölvupóstfanginu kelahus@simnet.is
Fundargjald er kr. 2.500 kr. (Posi á staðnum)
Virðingarfyllst,
Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi