14. september 2019

Jón Gunnarsson kjörinn ritari Sjálfstæðisflokksins

Jón Gunnarsson hefur verið kjörinn ritari Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi á Hilton Nordica í Reykjavík.

Jón hlaut 135 atkvæði, 52,9%. Áslaug Hulda Jónsdóttir hlaut 117 atkvæði, 45,2%. Aðrir hlutu færri atkvæði. Auðir og ógildir seðlar voru 4. 259 greiddu atkvæði.

Jóni er óskað til hamingju með kjörið með góðum óskum um farsæld í nýju verkefni sínu í innra starfi Sjálfstæðisflokksins.