21. apríl 2022

Helstu kosningaáherslur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Helstu kosningaáherslur

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri Akureyri okkar allra

    • Traust fjármálastjórnun verði í öndvegi og áhersla lögð á að lækka álögur á bæjarbúa.
    • Gjaldfrjáls leikskólapláss  fyrir öll börn frá 12 mánaða aldri.
    • Akureyrarbær verði áfram leiðandi í umhverfismálum . Skapaður verði vettvangur fyrir einkaaðila, fyrirtæki og stofnanir til að kolefnisjafna starfsemi sína.
    • Akureyrarbær losi um fjármagn sem bundið er í fasteignum.
    • Framboð íbúða- og atvinnulóða verði tryggt í sveitarfélaginu og efnt verði til hugmyndasamkeppni um uppbyggingu á Akureyrarvelli.
    • Stoðþjónusta í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar verði efld með aukinni viðveru sérfræðinga í skólunum.
    • Áfram verði tryggð góð þjónusta við fatlað fólk og eldri borgara. Akureyrarbær verði leiðandi í lausnum á sviði velferðartækni.
    • Stafræn þjónusta við íbúa og fyrirtæki verði aukin til muna .
    • Akureyrarbær verði áfram heilsueflandi samfélag þar sem sérstök áhersla verði lögð á lýðheilsu eldri borgara.
    • Frístundastyrkur hækkaður í 50.000 kr. og frístundastrætó verði komið á. 
    • Áfram verði hlúð að starfsemi íþróttafélaga í sveitarfélaginu og leitað leiða til að mæta þörfum þeirra til frekari uppbyggingar.
    • Kynja- og jafnréttissjónarmið verði höfð að leiðarljósi í allri starfsemi Akureyrarbæjar. 
    • Ráðist verði í átak til þess að fjölga íbúum og atvinnutækifærum í sveitarfélaginu. 
    • Menningarlíf verði áfram atvinnuskapandi og fjölbreytt öllum bæjarbúum til ánægju og fróðleiks.