8. október 2016

Halldór Blöndal verður heiðursfélagi í Málfundafélaginu Sleipni

Halldór Blöndal, fyrrum ráðherra og alþingismaður, var gestur á fundi hjá Málfundafélaginu Sleipni á kosningaskrifstofunni í morgun. Í upphafi fundar tilkynnti Stefán Friðrik Stefánsson, formaður, um þá ákvörðun stjórnar að gera Halldór að heiðursfélaga í Sleipni.

Halldór lék lykilhlutverk í starfi Sleipnis um árabil og vildi alltaf hag félagsins sem mestan. Halldór var forystumaður í öllu stjórnmálastarfi Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi um áratugaskeið, fyrst sem erindreki flokksins á Norðurlandi, formaður Varðar og Sleipnis, og síðar varaþingmaður í Norðurlandskjördæmi eystra 1971-1979 og alþingismaður 1979-2007, síðustu fjögur árin fyrir Norðausturkjördæmi. Halldór var ráðherra á árunum 1991-1999 og forseti Alþingis 1999-2005.

Frá árinu 2009 hefur Halldór verið formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna. Undir hans stjórn hefur SES verið mjög virkt með vikulega súpufundi í hádegi á miðvikudögum yfir vetrartímann. Á fundinum hjá Sleipni nú ræddi Halldór málefni eldri borgara og stöðuna í pólitíkinni. 

Á fundinum var Halldóri afhent skjal til staðfestingar ákvörðun stjórnar Sleipnis og gjöf frá stjórninni að auki. Hér fyrir neðan texta má sjá heiðursskjalið frá stjórn Sleipnis.