5. apríl 2017
Gunnar tekur sæti í stjórn Norðurorku


Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, var kjörinn í stjórn Norðurorku á aðalfundi fyrirtækisins á föstudag. Varamaður hans í stjórninni var kjörin Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi. Eva Hrund hefur verið varamaður flokksins í stjórninni allt þetta kjörtímabil.
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, sem setið hefur í stjórn fyrirtækisins af hálfu Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2011, vék úr stjórninni á fundinum.
Með því lýkur þátttöku Njáls Trausta á vettvangi bæjarmálanna, en hann lét af störfum bæjarfulltrúa um áramót.