21. maí 2021

Gunnar Gíslason gefur ekki kost á sér til endurkjörs

Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, tilkynnti í stöðuuppfærslu á facebook-síðu sinni í dag að hann gefi ekki kost á sér til endurkjörs í sveitarstjórnarkosningum að ári. Gunnar hefur leitt flokkinn og setið í bæjarstjórn af hans hálfu frá vorinu 2014.

Tilkynning Gunnars er eftirfarandi:

Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér í næstu sveitarstjórnarkosningum og mun því hverfa af þeim vettvangi eftir næstu kosningar, sem verða eftir rétt ár. Ég tilkynni þetta núna svo nægur tími gefist fyrir þá sem vilja taka við að koma sér á framfæri og undirbúa sig.