7. ágúst 2019

Gönguferð og grill í Kjarnaskógi 18. ágúst

Gönguferð í Kjarnaskógi í tilefni af 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins verður haldin sunnudaginn 18. ágúst nk. kl. 12:00.

Trjálundur sem eldri flokksmenn gróðursettu í Naustaborgum um og uppúr miðri síðustu öld skoðaður undir leiðsögn. Á eftir verður grillað á svæðinu við blakvellina en þar eru leiktæki fyrir börnin og hægt að hafa það notalegt. Þar rétt við er kirsuberjalundur hvar við settum niður tré á afmælisdaginn 25. maí.

Gangan hefst stundvíslega kl. 12:00 (mæting í kringum 11:50) og grillað um eða uppúr kl. 13:00.

Allir hjartanlega velkomnir - hittumst og eigum saman góða stund.

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri