24. maí 2014

Góð stemmning og fjör á kosningaskrifstofunni

Góð stemmning er á kosningaskrifstofunni okkar að Strandgötu 3. Fjöldi kjósenda lítur í heimsókn og ræðir við frambjóðendur um kosningamálin.


Síðdegis í gær leit Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, til okkar ásamt Þórði Þórarinssyni, framkvæmdastjóra flokksins. Þau voru á ferð um Eyjafjörðinn og litu líka við til félaga okkar á Dalvík og í Fjallabyggð.


Í hádeginu var Halldór Blöndal, formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna og fyrrum ráðherra og forseti Alþingis, gestur okkar á fundi um málefni eldri borgara. Gunnar Gíslason, oddviti framboðslistans, kynnti stefnumál Sjálfstæðisflokksins og svo flutti Halldór ræðu. 


Kl. 18:00 var Gunnar svo af hálfu Sjálfstæðisflokksins í framboðsþætti Ríkisútvarpsins sem haldinn var í Ráðhúsinu við Geislagötu, þar sem efstu menn í vor ræddu kosningamálin á Akureyri og tókust málefnalega á. 


Í gærkvöldi var svo herrakvöld sjálfstæðismanna. Fullt hús og góð stemmning. Hjónin Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, og Logi Bergmann Eiðsson, fréttaþulur á Stöð 2, voru gestir okkar. Svanhildur flutti hvatningarræðu til karlanna og Logi flutti hresst og gott grínprógramm og kom öllum í gott stuð.

Konurnar þjónuðu körlunum með mat og drykk, rétt eins og karlarnir þjónuðu konunum á kvennakvöldi 16. maí sl. Frambjóðendur voru kynntir og slógu svo á létta strengi í flottu atriði þar sem þeir tóku Djammlagið með Steinda Jr.  Karlakvartett flutti nokkur traust karlmannleg lög, Snorri Guðvarðarson kynnti skoskar eðalveigar og Þröstur úr Hrísey kynnti sinn frábæra harðfisk.


Hvetjum alla til að mæta á kosningaskrifstofuna á lokaspretti baráttunnar og fylkja liði með okkur.