24. mars 2016

Fundur með Ragnheiði Elínu og Valgerði 29. mars

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður, verða með fund fyrir sjálfstæðisfólk á Akureyri og nágrenni í Kaupangi.  Fundurinn hefst kl. 12.15 og stendur til kl. 13.30.

Fundarefnið verður fjölbreytt en málefni ferðaþjónustunnar er í fyrirrúmi. Fundarstjóri verður Njáll Trausti Friðbertsson bæjarfulltrúi.

Léttar veitingar í boði - allir velkomnir.

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri