26. ágúst 2018

Héraðsfundur Fýlupúkafélagsins í Eyjafirði 29. ágúst

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi miðvikudaginn 29. ágúst kl. 19:30. "Fýlupúkafélagið" sækir Eyjafjörð heim og tekur stöðuna á pólitíkinni við upphaf þingvetrar.

Alþingismennirnir Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson og Haraldur Benediktsson flytja framsögu um stöðuna í pólitíkinni og svara fyrirspurnum. 

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis. 


Heitt á könnunni - allir velkomnir.