17. maí 2022
Fundur með Njáli Trausta og Þorvaldi Lúðvík 21. maí


Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Sjallanum laugardaginn 21. maí kl. 11:00.
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri NiceAir, flytja framsögu og svara fyrirspurnum.
Rætt um uppbyggingu Akureyrarflugvallar, ferðaþjónustuna á Norður- og Austurlandi og NiceAir - kynning á fyrirtækinu og framtíðaráhorfum þess, en fyrsta áætlunarflug þess fer í loftið 2. júní nk.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis
Allir velkomnir - heitt á könnunni.