11. apríl 2016
Fundur með Ásmundi Friðrikssyni 16. apríl


Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Kaupangi laugardaginn 16. apríl kl. 11:00.
Ásmundur Friðriksson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum.
Ásmundur situr í atvinnuveganefnd og velferðarnefnd Alþingis og mun fara yfir stöðuna í málaflokkum þeirra sem og stöðuna almennt í pólitíkinni.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.
Allir velkomnir - boðið upp á létta morgunhressingu.