7. október 2017
Fundur með Áslaugu Örnu og Valgerði 10. október


Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, og Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður í Norðausturkjördæmi, flytja framsögu í síðdegisspjalli hjá Landssambandi sjálfstæðiskvenna á kosningaskrifstofunni okkar í Strandgötu 3 þriðjudaginn 10. október nk. kl. 17:00.
Við munum ræða um áskoranir í mennta- og geðheilbrigðismálum og svara spurningum sem brenna á vörum kjósenda. Einnig förum við yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum og ræðum kosningabaráttuna.
Við hvetjum allar konur til að mæta - fundurinn er opinn öllum.
Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna