30. maí 2022
Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 31. maí


Boðað er til fundar í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í Sjallanum þriðjudaginn 31. maí kl. 20:00.
Á fundinum verður málefnasamningur og meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks, L-lista og Miðflokks í bæjarstjórn Akureyrarbæjar kjörtímabilið 2022-2026 kynnt.
Seturétt á fundinum hafa þeir sem kjörnir hafa verið í fulltrúaráðið á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna og hafa fengið fundarboð í pósti.