14. ágúst 2024

Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins 31. ágúst

Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn síðustu helgina í ágúst, laugardaginn   31. ágúst  á  Hilton Reykjavík Nordica kl. 13:00 .

Dagskrá fundarins

Til að kanna hvort þú sért í flokksráði skráir þú þig inn á „Mínar síður“ með rafrænum skilríkjum á xd.is. Þar er valinn flipinn ,,flokkurinn“ en þar birtast núverandi trúnaðarstörf. Þar stendur ,,flokksráð“ ef þú ert í því. Vinsamlegast hafið  samband við skrifstofu flokksins ( xd@xd.is ) ef þú telur þig vera í flokksráði, en það birtist ekki undir flipanum.

Þess má geta að meðal sjálfkjörinna í flokksráði eru allir þingmenn og flokksbundnir fyrrverandi þingmenn, auk sveitarstjórnarmanna í aðalsætum, stjórnum kjördæmisráða, formönnum allra félaga og ráða. Lesa má í 9. gr. skipulagsreglna flokksins  hér  um alla þá sem sjálfkjörnir eru.

Sérstök afsláttarkjör fyrir fundargesti utan af landi má finna  hér .