9. janúar 2018

Fjórtán einstaklingar gefa kost á sér til röðunar

Fjórtán einstaklingar gefa kost á sér til röðunar við val á sex efstu sætum framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við sveitarstjórnarkosningar 26. maí nk, en framboðsfrestur rann út í dag. Kosning fer fram á fundi aðal- og varamanna í fulltrúaráði laugardaginn 3. febrúar en kjörnefnd mun gera tillögu um skipan listans í heild sinni að því loknu.

Í framboði eru: (innan sviga er sæti sem viðkomandi gefur kost á sér í)

Axel Darri Þórhallsson, viðskiptafræðinemi (1. - 6.)
Baldvin Valdemarsson, bæjarfulltrúi (3.)
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, laganemi (1. - 6.)
Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri (4. - 6.)
Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi (2.)
Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi (1.)
Ingibjörg Jóhannsdóttir, sálfræðinemi (5. - 6.)
Kristján Blær Sigurðsson, framhaldsskólanemi (3. - 6.)
Lára Halldóra Eiríksdóttir, grunnskólakennari (4. - 6.)
Sigurjón Jóhannesson, sviðsstjóri (3.)
Valdimar O. Hermannsson, verkefnastjóri (3. - 6.)
Þórhallur Harðarson, mannauðsstjóri (4. - 6.)
Þórhallur Jónsson, kaupmaður (1. - 6.)
Þórunn Sif Harðardóttir, starfsmannastjóri (3. - 4.)

 

Athugasemd - 22. janúar 2018: Ingibjörg Jóhannsdóttir dró framboð sitt til baka.

Athugasemd - 26. janúar 2018: Þórunn Sif Harðardóttir dró framboð sitt til baka.