24. október 2016

Fjölmenni á hádegisfundi Bjarna á Akureyri

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt hádegisfund á kosningaskrifstofunni okkar hér á Akureyri í gær. Mikill fjöldi fólks mætti til fundarins og fékk sér ljúffenga súpu og góða pólitíska næringu - mikill kraftur í hópnum á lokaspretti kosningabaráttunnar.



Fyrir fundinn fór Bjarni í vinnustaðaheimsóknir í Norðlenska, Höld, ÚA og Sjúkrahúsið með Kristjáni Þór, Njáli Trausta, Valgerði og Elvari.

Myndir frá hádegisfundi með Bjarna á Akureyri
Myndir frá vinnustaðaheimsóknum efstu manna í kjördæminu með Bjarna


Ljósmyndir tók Auðunn Níelsson.