6. maí 2021

Einar Freyr Guðmundsson - framboðskynning

Einar Freyr Guðmundsson, menntaskólanemi, Egilsstöðum, gefur kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, 29. maí nk.

Einar Freyr Guðmundsson er fæddur 27. mars 2003  og er því 18 ára gamall.  

Höfuðáhersl ur  Einars  felast í því að auka áhuga ungs fólks á stjórnmálum og gera það virkara í þjóðfélagsumræðunni. Hann vill að ungt fólk  taki aukinn þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins  og telur það vera meginforsendu bjartar framtíðar   flokksins. Hann vill að fleira fólk uppgötvi ágæti sjálfstæðisstefnunnar og grunngilda flokksins.   

Einar er nemandi við Menntaskólann á Egilsstöðum. Hann hefur frá árinu 2017 setið í ungmennaráði, fyrst ungmennaráði Fljótsdalshéraðs og síðar í ungmennaráði Múlaþings. Frá árinu 2019 hefur hann starfað sem formaður beggja ráða og var  einnig  liðsstjóri mælsku- og rökræðuliðs  ME  á núverandi skólaári.   Helstu áhugamál Einars eru bakstur  og allt sem tengist stjórnmálum.    

Þessa stundina standa Íslendingar á krossgötum  og f orsenda bjartar efnahagsleg r ar framtíðar er að Sjálfstæðisflokkurinn fái góða kosningu í haust.  T il þess að það geti gerst þurfa framboðslistar flokksins að vera sterkir og endurspegla kjósendahópinn sem best . Það eru mikil sóknarfæri hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðausturkjördæmi til að ná betur til ungs fólks.  Þessi sóknarfæri þarf að grípa.  

Áfram Norðausturkjördæmi!