Edvard van der Linden látinn


Félagi okkar og kær vinur, Edvard van der Linden, stjórnarmaður í Málfundafélaginu Sleipni, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri, fimmtudaginn 2. maí, áttræður að aldri. Jarðarför hans mun fara fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 10. maí nk. kl. 13:30.
Edvard fæddist í Rotterdam í Hollandi 4. ágúst 1938. Eiginkona hans er Herdís Guðrún van der Linden. Þau eignuðust fjóra syni: Ómar Þór, Arnar Christian, Jón Örvar og Pálmar Gústaf. Þau eiga ellefu barnabörn og eitt langafabarn.
Fyrstu árin bjó Edvard í Hollandi en fluttist svo til Danmerkur að lokinni seinni heimsstyrjöldinni - stríðstíminn setti mikið mark á Edvard og var honum mikil lífsreynsla og rændi hann æskunni eins og hann sagði oft. Í Danmörku kynntist Edvard eiginkonu sinni Herdísi, meðan hún var í hjúkrunarfræðinámi þar ytra. Í Danmörku starfaði hann td sem flugeindarafvirki hjá SAS og flugrafvirki hjá Stirling Airways.
Edvard, Herdís og synirnir fjórir fluttu til Íslands árið 1972 - fjölskyldan bjó um tíma í Reykjavík, en fluttist svo í Kristnes þar sem Herdís starfaði um nokkuð skeið. Edvard og Herdís fluttust með fjölskyldu sína til Akureyrar árið 1978, bjuggu þar alla tíð í Steinahlíð. Edvard, sem var raftækja- og iðnfræðingur að mennt, starfaði sem símvirki hjá Pósti og síma allan starfsaldur sinn eftir að fjölskyldan flutti til Íslands.
Eddý, eins og hann var jafnan kallaður, vann ötullega fyrir Íþróttafélagið Þór allt frá því hann fluttist í þorpið. Hann sat í stjórn knattspyrnudeildar Þórs um áratugaskeið og kom á reglulegum kaffifundum félagsmanna með mági sínum Ævari Heiðari Jónssyni, sem fyrst voru haldnir á laugardögum og síðar færðir yfir á föstudaga.
Eddý var gerður að heiðursfélaga í Þór í desember 2013. Áður hafði hann fengið bæði silfur- og gullmerki félagsins. Hann var einnig sæmdur silfurmerki KSÍ á 95 ára afmæli Þórs sumarið 2010.
Edvard vann um langt skeið með Sjálfstæðisflokknum á Akureyri -- Eddý hafði brennandi áhuga á þjóðmálum og var mikilvirkur í félagsstarfi flokksins; mætti á alla fundi og viðburði. Fyrst vann hann í bakvarðasveitinni með öflugu fjáröflunarstarfi. Hann var svo kjörinn varamaður í stjórn Málfundafélagsins Sleipnis vorið 2011 og sat síðan í aðalstjórn Sleipnis frá vorinu 2012 til dánardags.
Eddý var einlægur, hress og jákvæður félagi sem alltaf lagði gott og heilsteypt framlag til félagsstarfsins okkar - vinsæll og vann vel fyrir vini sína og félaga. Að honum verður mikill missir í félagsstarfinu.
Sjálfstæðismenn á Akureyri votta fjölskyldu Edda innilega samúð - við þökkum honum sanna vináttu og tryggð við starf Sjálfstæðisflokksins.
Stefán Friðrik Stefánsson
formaður Málfundafélagsins Sleipnis og ritstjóri Íslendings