8. júní 2016

Breytingar í nefndum

Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær voru samþykktar breytingar í nefndum af hálfu Sjálfstæðisflokksins.

Um er að ræða breytingar á varasætum í umhverfisnefnd og hafnarstjórn. Ármann Sigurðsson sem skipaði varasæti í báðum nefndum hefur flutt búferlum til Reykjavíkur. Anna Rósa Magnúsdóttir verður varamaður í umhverfisnefnd og Rúnar Sigurpálsson verður varamaður í hafnarstjórn.