1. september 2015

Breytingar í nefndum

Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í dag voru samþykktar breytingar í nefndum af hálfu Sjálfstæðisflokksins.

Gunnar Gíslason verður varamaður í skólanefnd í stað Hönnu Daggar Maronsdóttur, og Baldvin Valdemarsson verður varamaður í stjórn LSA, í stað Evu Hrundar Einarsdóttur.