Bjarni Benediktsson fimmtugur


Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fjármálaráðherra og fyrrum forsætisráðherra, er fimmtugur í dag.
Bjarni fæddist í Reykjavík 26. janúar 1970 og ólst upp í Garðabæ. Hann útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1989, lauk námi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1995, stundaði nám í þýsku og lögfræði í Þýskalandi 1995-1996, LL.M.-gráða (meistaragráða í lögfræði) frá Háskólanum í Miami í Bandaríkjunum 1997 og varð löggiltur verðbréfamiðlari árið 1998. Bjarni starfaði sem fulltrúi sýslumannsins í Keflavík árið 1995, lögfræðingur Eimskipafélags Íslands á árunum 1997-1999, lögmaður með eigin rekstur á Lex lögmannsstofu 1999-2003 og faglegur framkvæmdastjóri Lex 2002-2003.
Bjarni vatt kvæði sínu í kross vorið 2003, gaf kost á sér í 5. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í alþingiskosningum og náði kjöri. Hefur síðan setið á þingi fyrir kjördæmið, sat í 2. sæti listans í kosningum 2007 og leitt lista flokksins í öllum kosningum frá árinu 2009. Bjarni var formaður allsherjarnefndar Alþingis á árunum 2003-2007 og formaður utanríkismálanefndar á árunum 2007-2009. Hann sat í stjórnarskrárnefnd af hálfu Sjálfstæðisflokksins 2004-2007 og ennfremur árið 2009. Bjarni sat í fjárlaganefnd Alþingis 2003-2007, í iðnaðarnefnd 2003-2004, heilbrigðis- og trygginganefnd 2004-2005, utanríkismálanefnd 2005-2009 og efnahags- og skattanefnd 2007-2009.
Bjarni var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í mars 2009, þegar Geir H. Haarde hætti pólitískri þátttöku sinni eftir hrunið, og gegnt formennsku síðan. Aðeins Ólafur Thors og Davíð Oddsson hafa setið lengur á formannsstóli. Bjarni tók við flokknum við erfiðar aðstæður og leiddi hann gegnum ýmis áföll áranna eftir hrunið. Kjörinn formaður fjórum sinnum á landsfundi með mótframboði, oftar en nokkur annar formaður flokksins.
Bjarni var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 2013-2017, forsætisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar janúar til nóvember 2017 og fjármálaráðherra að nýju í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknarflokks frá 30. nóvember 2017.
Eiginkona Bjarna er Þóra Margrét Baldvinsdóttir. Þau eiga saman fjögur börn; Margréti, Benedikt, Helgu Þóru og Guðríði Línu.
Sjálfstæðismenn á Akureyri og í Norðausturkjördæmi öllu óska Bjarna og fjölskyldu hans innilega til hamingju með stórafmælið.
Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings