1. ágúst 2017

Bergþóra Þórhallsdóttir biðst lausnar sem bæjarfulltrúi

Bergþóra Þórhallsdóttir hefur beðist lausnar frá störfum sem bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, frá og með deginum í dag, vegna flutninga til Kópavogs.

Bergþóra var varabæjarfulltrúi og sat í samfélags og mannréttindaráði 2014-2017 og bæjarfulltrúi frá síðustu áramótum en í leyfi þann tíma. Bergþóra var formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna 2007-2011, ritari fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 2010-2011 og sat í stjórn kjördæmisráðs 2014-2017.

Baldvin Valdemarsson verður nú formlega bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í stað Bergþóru, en hann hefur setið í bæjarstjórn frá síðustu áramótum í leyfi hennar vegna starfa í Kópavogsskóla. Bergþóra hefur nú ráðið sig þar formlega til starfa sem deildarstjóri yngra stigs og flytur til Kópavogs með eiginmanni sínum. Bergþóra var áður aðstoðarskólastjóri Brekkuskóla 2006-2016.



Baldur Dýrfjörð, eiginmaður Bergþóru, hættir störfum hjá Norðurorku nú í ágúst og hefur ráðið sig til Samorku. Baldur var formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 2008-2010 og sat áður í stjórn Málfundafélagsins Sleipnis 2006-2008. Baldur sat á framboðslista flokksins hér á Akureyri 2006 og var varaformaður samfélags- og mannréttindaráðs kjörtímabilið 2006-2010 og formaður barnaverndarnefndar Eyjafjarðar í 18 ár, frá stofnun 1999.

Sjálfstæðismenn á Akureyri færa Beggu og Baldri kærar þakkir fyrir sitt framlag í félagsstarfinu og óska þeim góðs gengis á nýjum vettvangi.


Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings