3. maí 2023

Berglind Ósk verður 2. varaformaður atvinnuveganefndar

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, verður 2. varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis í fæðingarorlofi Hildar Sverrisdóttur.

Berglind Ósk hefur setið í atvinnuvega­nefnd, stjórnskipunar- og eftirlits­nefnd, og Íslandsdeild þing­manna­ráðstefnunnar um norðurskautsmál síðan hún var kjörin á þing haustið 2021.