2. október 2015

Bæjarmálafundur 5. október

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 5. október kl. 17:30. 

Bæjarfulltrúar flytja framsögu um bæjarmálin - nefndarmenn gera grein fyrir stöðu mála í sínum nefndum.

Fyrir fundinum liggur m.a. umræða um menningarsamninga. Þá verður farið yfir málefni skólanefndar og stjórnar Akureyrarstofu ásamt því að vinna við nýtt skipulag á Oddeyri verður kynnt.

Fundarstjóri: Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi.

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.