4. nóvember 2016
Bæjarmálafundur 7. nóvember


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 7. nóvember nk. kl. 17:30.
Þar verður rætt um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar, en fyrri umræða um áætlunina fer nú fram í bæjarstjórn Akureyrar.
Fundarstjóri verður
Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.