3. febrúar 2017
Bæjarmálafundur 6. febrúar


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 6. febrúar kl. 17.30. Þar verður dagskrá bæjarstjórnarfundar 7. febrúar kynnt og málin rædd. Auk þess kynna fulltrúar okkar í Norðurorku og umhverfis- og mannvirkjaráði helstu mál sem eru þar á döfinni.
Meðal dagskrármála eru:
- Kynning á Norðurorku
- Kynning á umhverfis- og mannvirkjaráði
- Skipulagsmál
- Stefnuræða formanns skipulagsráðs
Fundarstjóri verður Sigurjón Jóhannesson, varabæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.