3. september 2016
Bæjarmálafundur 5. september


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 5. september kl. 17.30. Þar verður dagskrá bæjarstjórnarfundar 6. september kynnt og málin rædd.
Þar verður m.a. Árshlutareikningur Aðalsjóðs Akureyrarbæjar 2016 lagður fram, einnig verða til umfjöllunar skipulagsmál ásamt yfirliti yfir það sem gerst hefur í sumar í bæjarráði.
Fundarstjóri verður Sigurjón Jóhannesson, varabæjarfulltrúi.