3. desember 2016

Bæjarmálafundur 5. desember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 5. desember kl. 17:30. 

Þar verður dagskrá bæjarstjórnarfundar kynnt og málin rædd. Meðal dagskrármála eru viðauki við fjárhagsáætlun 2016 og umræða um samstarf og sameiningu sveitarfélaga.

Við munum einnig ræða um fjárhagsáætlun 2017 auk skipulagsmála; Oddeyri - rammahluti aðalskipulags, Miðbær - hlutfall landnotkunarflokka og Hvannavallarreitur.

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.