1. september 2017

Bæjarmálafundur 4. september

Fyrsti bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri að loknu sumarleyfi verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 4. september kl. 17:30. 

Rætt um bæjarmálin, einkum skipulagsmál, einkum aðalskipulag Akureyrarkaupstaðar 2018-2030 sem verður nú rætt í bæjarstjórn. Einnig rætt um þau mál sem hæst bera að öðru leyti að loknu sumarleyfi.

Fundarstjóri: Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.

Hvetjum alla sjálfstæðismenn til að mæta og ræða bæjarmálin.