27. nóvember 2020

Bæjarmálafundur 30. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í fjarfundi á Zoom mánudaginn 30. nóvember kl. 17:30.

Rætt verður t.d. um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021 (fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn), stöðuna á rekstri Akureyrarbæjar fyrstu 9 mánuði ársins 2020, stígakerfi Akureyrar, hvannavallareit og stöðu framhaldsskólanna og Háskólans á Akureyri.

Allir velkomnir. Slóð á fjarfundinn


Fundarstjóri: Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri