1. febrúar 2020
Bæjarmálafundur 3. febrúar


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 3. febrúar kl. 17:30.
Rætt td um vinnu við skipulag miðbæjarins, skýrslu um forgangsröðun framkvæmda við íþróttamannvirki, skipulagsmál, niðurstöður þjónustukönnunar Gallups fyrir Akureyrarbæ og væntanlega heimsókn þingflokks Sjálfstæðisflokksins til Akureyrar.
Fundarstjóri: Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.