29. október 2020
Bæjarmálafundur 2. nóvember


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í fjarfundi á Zoom mánudaginn 2. nóvember kl. 17:30.
Rætt verður t.d. um yfirlit á rekstri sveitarfélagsins fyrstu átta mánuði ársins, viðauka 16 við fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020, lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna fjárfestinga, nýtt leiðarkerfi Strætisvagna Akureyrar og málefni Reykjavíkurflugvallar.
Allir velkomnir. Slóð á fjarfundinn
Fundarstjóri: Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri