30. desember 2016

Bæjarmálafundur 2. janúar

Fyrsti bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri á nýju ári verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 2. janúar 2017 kl. 17:30. 

Rætt um breytingar í nefndum bæjarins, þeim verður nú fækkað um þrjár og stofnaðar nýjar; umhverfis- og mannvirkjaráð og frístundaráð, sem og öðrum breytt og hafa nú allar endann ráð í stað nefnda. Auk þess verður rætt um velferðar- og skipulagsmál.

Fundarstjóri verður Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.